Vikuplan 27.- 31. maí

24.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 5. bekkjar


27.maí – 6. júní 2013


 


Nú þarf að athuga með hjólin og hjálmana. Við förum í hjólaferð á mánudaginn.


 




  •   Mánudagur 27. maí.   Hjólaferð í Engidal.  Mæting við skóla kl. 8.15   þeir sem búa í Firðinum mæti við gatnamót Hafraholts og Holtabrautar kl. 8.30. Þeir sem eru í mötuneytinu fá hádegisnesti þaðan en aðrir taka með sér tvöfalt nesti. Áætluð heimkoma milli 12:00 og 13:00. Munið eftir hjólahjálmunum.


  •      Þriðjudagur 28. maí. Prófdagur.  Nemendur mæta í framsagnarpróf, tímasetning og blað hafa þegar borist heim.  Eftir prófið er skóladegi lokið.

  •      Miðvikudagur 29. maí. Prófadagur. Nemendur mæta kl.8.00 í stærðfræðipróf og fara heim að því loknu.Þarna þarf að skila námsbókum og öðrum bókum í eigu skólans sem þeir eru með. Fimmtudagur 30.maí. Íþróttadagur í skólanum.  Mæting kl. 9.00 að íþróttahúsinu Torfnesi. Skóladegi lýkur um hádegi.

  •      Föstudagur 31. maí. Vorverkadagur. Mæta kl.8:00 með nesti, klædd til útiveru. Matur í mötuneyti kl. 12:00 og þar lýkur skóladegi.

  •      Mánudagur 3. júní. Heimsókn í Náttúrustofu í Bolungarvík.  Mæting við skólann kl. 8.00. Heimkoma áætluð milli 12.00 og 13.00.

  •      Þriðjudagur 4. júní. Leikjadagur. Mæta í anddyri skólans kl. 8:45, klædd til útiveru. Skóladegi lýkur á Torfnesi um kl. 12:30.

  •      Miðvikudagur 5. júní. Frídagur.

  •      Fimmtudagur 6. júní. Afhending einkunna kl. 10 í skólastofu.


 


        Að því loknu hefst sumarfrí.


 


                              Takk fyrir gott samstarf í vetur


 


                                                        Kv. Hlíf og Valgerður