Vikuáætlun september
05.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

8. september – 12. september
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Íslenska: Komdu og skoðaðu fjöllin, ýmis vinna samþætt samfélagsfræði og náttúrufræði.
Stærðfræði: Sproti 2a, Æfingahefti; 9. Kafli, tvöfalt meira og helmingi minna-sléttar tölur og oddatölur.
Tónmennt: Stafrófsvísan. Út um mó.
Lífsleikni: Litahegðun og þarfastjarnan.
Einnig förum við í íþróttir, sund, dans, útivist, myndmennt og upplýsingatækni.
Heimavinna
Lestur daglega.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg
_____________________________________________________________________________________________________
Vikuáætlun 2. bekkur
1. september – 5. september
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Íslenska: Ljóðið Fjallganga eftir Tómas Guðmundsson.
Ýmis verkefni unnin sem tengjast þessu skemmtilega ljóði.
Stærðfræði: Sproti 2a. Æfingahefti
Tónmennt: Stafrófsvísan. Út um mó.
Lífsleikni: Litahegðun og þarfirnar okkar.
Einnig förum við í íþróttir, sund, dans, útivist, myndmennt og upplýsingatækni.
Heimavinna
Lestur daglega.
Við stefnum að því að fara í okkar árlegu fjallgöngu á fimmtudag og er stefnan sett á Hafrafellsháls. Þar sem strætóferðir eru ekki í boði þá ætlum við að hjóla inn eftir. Við leggjum í hann kl. 8:10 frá skólanum og áætlum að vera komin aftur til baka tímanlega fyrir frístundina kl. 11:00. Nemdur sem eiga heima inni í firði, eiga að mæta á fótboltavöllin þar sem kennari mun taka á móti þeim. Foreldrum er að sjálfsögðu meira en velkomið að slást í förina og gott væri að vita hvort einhver kemst með upp á skipulagningu (þó ekki væri nema að bíða á fótboltavellinum frá 8- ca. 8:30).
Nemendur mæta klæddir eftir veðri, með hjálma, léttan bakpoka, berjabox, staðgott nesti og lestrarvasa (ekki skólatösku).
Hætt er við að þessi dagsetning gæti riðlast og biðjum við ykkur að vera dugleg að kíkja í tölvupóstinn.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg








