Vikuáætlun og rauður dagur
02.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun
12. desember - 20.
desember 2011
4. bekkur.
Verkefni vikunnar verða m.a. þessi:
Stærðfræði:
Sproti, klára upp. Æfingahefti
Íslenska:
Ritun,
skrift, samlestur, stafsetning.
Tónmennt:
Ýmis
jólalög.
Samfélagsfræði:
Aðventustund,
jólaföndur.
Náttúrufræði: Úrkoma.
Enska: „We wish you a Merry Christmas“
Kristinfræði: Jólatréð.
Einnig
förum við í hringekju, dans, íþróttir og útivist.
Heimavinnan er komin í jólafrí nema daglegi
lesturinn.
Mánudaginn 19.desember
er skreytingardagur og mæta nemendur eins
og venjulega með skólatöskuna en skóla lýkur kl: 12:00 þann dag. Gott væri að nemendur hefðu með sér heftara
og hefti í skólann þar sem við ætlum að búa til jólakeðjur.
Þriðjudaginn 20. desember
eru svo Litlu jólin og mæta þá nemendur
spariklæddir kl: 9.00. Nemendur koma þá með smákökur og gos eða fernudrykk með
sér í nesti. Við ætlum að hafa notalega
stund í stofunni okkar og fara á jólaball. Skóla lýkur svo kl. 12:00 og þar með
hefst jólafríið.
Sú
hefð hefur skapast hér við skólann að börnin skiptast á gjöfum á Litlu
jólunum. Börnin eiga að skila gjöfunum
til umsjónarkennara eigi síðar en föstudaginn
16. desember. Gjöfin á að vera
innpökkuð og henta báðum kynjum.
Hámarksverð er 500 kr.
Strætisvagnar
fara frá skólanum kl: 12.05 mánudaginn 19. og þriðjudaginn 20. desember.
Kennsla
hefst aftur miðvikudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Óskum nemendum og fjölskyldum þeirra
gleðilegra jóla og þökkum samvinnuna á árinu sem er að líða.
Inga Sigga og Jón Heimir
Vikuáætlun
4. bekkur
5. desember – 9. desember
Í þessari viku tökum við fyrir
eftirfarandi:
Íslenska: Skrift, samlestur, málfræði, Skinna.
Stærðfræði:
Sproti bls. 84-87 og æfingahefti.
S amfélagsfræði:
Góða ferð. Jólaföndur.
Náttúrufræði: Snjókorn.
Kristinfræði:
Boðun
Maríu. Frelsari fæddur.
Enska: Santa Clause.
Tónmennt: Jólalög og sálmar.
Einnig
förum við í hringekju, dans, og íþróttir
Heimavinna
Lestur daglega.
Fimmorðabók tvisvar í viku.
Íslenska:
Vinnubók, (dagstimpill).
Stærðfræði: Verkefnablað,
klukkan,(dagstimpill).
Þriðjudaginn 6. desember er
„rauður dagur“ í skólanum. Svona til gamans og til að minna á komu jólanna þá
ætlum við öll að reyna að klæðast einhverju rauðu. Það þarf ekki að vera neinn
alklæðnaður heldur bara rauðir sokkar,húfa (jólasveinahúfa), bindi, slaufa,
hárspenna eða hárband, eða bara hvað sem er.
Gott væri að fá
auglýsingapésa og slíkt að heiman til að skera niður og nota í keðjurnar
vinsælu fyrir Skreytingadaginn.
Kær kveðja
Inga Sigga og Jón Heimir








