Vikuáætlun fyrir 7. - 10. apríl

07.04.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


7. - 10. apríl




  • Við vorum aldeilis ánægðar með árshátíðina og erum stoltar af krökkunum J




Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Byrjendalæsi; Tár úr steini eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Stærðfræði: Sproti 2a bls.46 – 49. Bókin fer heim á föstudaginn til að æfa gulu síðurnar (bls. 50-53), hún kemur tilbaka á þriðjudaginn 14. apríl. Könnun verður þann 15. apríl (könnunin verður eins og bls. 50, nema bara aðrar tölur). Unnið í æfingahefti Sprota í skólanum á meðan bókin er heima.

Lífsleikni: Vinir Zippýs, 4.4. Að hjálpa öðrum að leysa ágreiningsmál.
Tónmennt: Krakkar út kátir hoppa.


Auk þess fara þau í; útivist, heimilisfræði, handavinna, dans, smíðar, sund og leikfimi.


Heimanám :


Heimalestur : Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega í a.m.k. 10 mínútur fyrir foreldra sína, sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann eða í grænu bókina. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


                                                     Bestu kveðjur


Árný og Ranný