Vikuáætlun fyrir 23. -27. mars

20.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


23.- 27. mars


Árshátíðin er í þessari viku og búningarnir þurfa að koma á mánudaginn.


Krakkarnir sem leika skugga þurfa að vera í svartir peysu/bol og svörtum buxum/leggings.


Skuggarnir eru: Árni, Freyja, Sophia, Orri, Ívar, Birna Sif, Rakel, Grétar, Martyna, Ernir, Stefán Eyjólfs, Alexander, Eyþór, Halldór, Hrafnhildur, Katrín, Markús, Natalia, Palli, Sigrún, Þórunn.


Allir hinir leika fólk. Krakkarnir sem leika fólk þurfa að vera í ljósum fötum, peysa/bolur/kjóll og buxur/leggings.


Ath. það er ekki ætlast til að þið kaupið ný föt á börnin heldur notið það sem er til og ef eitthvað vatnar má hafa samband við okkur og við athugum hvað er til í skólanum.


Gott væri að börnin kæmu með búninga í merktum poka sem við getum svo sett þar sem auðvelt verður fyrir hvern og einn að finna sín föt.


Vinsamlega látið okkur vita tímanlega ef nemendur verða ekki í skólanum árshátíðadagana.


Á fimmtudaginn, eftir morgunsýningu, langar okkur til að hafa bekkjarskemmtun þar sem krakkarnir fá pizzu og koma með gos eða svaladrykk. Þá er þetta nesti dagsins. Best


væri að allir borgi þetta á mánudaginn og hlutur hvers og eins er 250.- kr. Drykkinn koma þau með að heiman.


Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Ýmis verkefni og upprifjun. Páskaföndur og vinna í sambandi við það.


Stærðfræði: Sproti 2a bls. 39 – 45. Ljúkum samlagningu með tölum frá 0 -20 og byrjum á frádrætti.           


Lífsleikni: Undrið eina, páskasaga.


Tónmennt:  Árshátíðaræfingar.


Auk þess fara þau í; útivist,  heimilisfræði, handavinnu, smíðar, dans,  sund og innileikfimi.


 


Heimanám :


Heimalestur : Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega í a.m.k. 10 mínútur fyrir foreldra sína, sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann eða grænu bókina. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Bestu kveðjur


Árný og Ranný