Vikuáætlun fyrir 1. - 5. júní
29.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
1.-5. júní
Mötuneytið er lokað þessa vikuna.
Foreldrar þurfa að panta foreldraviðtöl í mentor.is fyrir fimmtudaginn 4. júní. Farið er inn í skóladagatalið, dagurinn valinn og velja tíma. Hafið samband ef þetta gengur ekki.
1. júní. Venjulegur skóladagur. Nemendur þurfa að hafa tvöfalt nesti því mötuneytið er lokað .
2. júní. Leikjadagur. Kennsla eftir hádegið og við reynum að taka svolítið til í skúffunum okkar. Nemendur þurfa að hafa tvöfalt nesti því mötuneytið er lokað.
3. júní. Fjöruferð. Nemendur þurfa að hafa tvöfalt nesti því mötuneytið er lokað. Endanlegur frágangur í skólanum og því þurfa allir að koma með skólatöskuna til að taka dót heim.
4. júní. Starfsdagur kennara og því engin kennsla.
5. júní. Nemendur koma í foreldraviðtal ásamt foreldrum á umsömdum tíma.
Sumarlestur:
Mikilvægt er að lesa reglulega í sumarfríinu, helst á hverjum degi, því lestrarfærnin dettur niður ef engin þjálfun er að sumrinu. Við heimsóttum Bókasafn Ísafjarðar í vikunni og fengum upplýsingar þar um sumarlestrarátak þeirra og það er um að gera að taka þátt í því.
Takk kærlega fyrir samskiptin í vetur
Árný og Ranný








