Vikuáætlun fyrir 18. - 22.maí

15.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


18.-22. maí


19. maí. Lesskilningspróf. Allir að muna eftir blýanti og strokleðri.


20. maíSkriftarpróf, allir þurfa að hafa vel yddaðan blýant og strokleður í veskinu.


21. maí er heimsókn í Íslandssögu á Suðureyri. Brottför með rútu frá skólanum kl. 8:15 og því nauðsynlegt að allir mæti kl. 8 eins og venjulega. Allir þurfa að vera vel skóaðir og klæddir eftir veðri. Gott væri að hafa lítinn bakpoka undir nesti og vettlinga. Við komum heim í skólann fyrir mat um kl. 11.30. Svo er hefðbundið skólastarf.


Danssýning: Miðvikudaginn 20. maí er danssýning í dansstofunni. 1. HA kl. 12:20  og 1. ÁH kl. 13:00. Allir foreldrar og aðrir vinir og ættingjar velkomnir á sýninguna.


22. maí. Stærðfræðipróf. Við sendum Sprota 2a heim ef einhverjir vilja æfa sig. Hún þarf að koma aftur í skólann.


Sproti 1a og 1b eru komnar heim því við vorum búin að ljúka þeim.


 


 


Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Byrjendalæsi; Regnbogafiskur eftir Marcus Pfister.


Stærðfræði: Upprifjun unnin, í æfingahefti Sprota 2a., 
Tónmennt: Fiskalagið og Hákarlalagið.
Myndmennt: Fiskaþema


Auk þess fara þau í; útivist, heimilisfræði, handavinnu, smíðar, dans,  sund og úti-leikfimi.


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Árný og Ranný