Vikuáætlun fyrir 16. - 23. mars

13.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


16.- 20. mars


Nú eru bara 2 vikur í árshátíð GÍ  sem verður 25. og 26. mars og æfingar á árshátíðaratriðinu í fullum gangi.


Við þurfum að leita til ykkar foreldra og fá aðstoð við að útvega leikbúninga. Krakkarnir sem leika skugga þurfa að vera í svartir peysu/bol og svörtum buxum/leggings.


Skuggarnir eru: Árni, Anna Kristín, Sophia, Orri, Ívar, Elísabet, Birna Sif, Rakel, Grétar, Martyna, Guðrún Natalía, Stefán Eyjólfs, Alexander, Eyþór, Halldór, Hrafnhildur, Katrín, Markús, Natalia, Palli, Sigrún,Þórunn.


Allir hinir leika fólk. Krakkarnir sem leika fólk þurfa að vera í ljósum fötum, peysa/bolur/kjóll og buxur/leggings.


Ath. það er ekki ætlast til að þið kaupið ný föt á börnin heldur notið það sem er til og ef eitthvað vatnar má hafa samband við okkur og við athugum hvað er til í skólanum.


Gott væri að börnin kæmu með búninga í merktum poka sem við getum svo sett þar sem auðvelt verður fyrir hvern og einn að finna sín föt.


Vinsamlega látið okkur vita tímanlega ef nemendur verða ekki í skólanum árshátíðadagana.


 


 


Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Byrjendalæsi; Kossinn sem hvarf eftir David Melling  Við ætlum að vinna með setningar.


Stærðfræði: Sproti 2a bls. 39 – 45. Ljúkum samlagningu með tölum frá 0 -20 og byrjum á frádrætti.           


Lífsleikni: Vinir Zippýs 4.3  Vandamálin leyst.


Tónmennt:  Árshátíðaræfingar.


Auk þess fara þau í; útivist,  heimilisfræði, handavinnu, smíðar, dans,  sund og innileikfimi.


 


Heimanám :


Heimalestur : Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega í a.m.k. 10 mínútur fyrir foreldra sína, sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann eða grænu bókina. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Bestu kveðjur


Helga og Árný