Vikuáætlun fyrir 11. - 15. maí

08.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


11.-15. maí


Útileikfimi byrjar 11. maí og mikilvægt að nemendur séu klæddir eftir veðri.


Uppstigningardagur er 14. maí og því enginn skóli þann dag.


Við munum lestrarprófa í vikunni, aðallega á miðvikudaginn.


Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Byrjendalæsi; Lotta skotta og frekjudósirnar eftir Elínu Elísabetu Jóhannsdóttur.
Stærðfræði: Sproti 2a æfingahefti og hefti sem kennarar útbúa.


Lífsleikni: Spjallað um hegðum í samhengi við söguna Lotta skotta og frekjudósirnar.
Tónmennt: Vorlög
Myndmennt: Samþætt Byrjendalæsi.


Auk þess fara þau í; útivist, heimilisfræði, handavinnu, smíðar, dans,  sund og úti-leikfimi.


Heimanám :


Heimalestur : Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann og í grænu bókina. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa .


Árný og Ranný