Vikuáætlun 9. - 13. mars
07.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
9. – 13. mars
Nú eru bara 3 vikur í árshátíð GÍ sem verður 27. og 28. mars og æfingar á árshátíðaratriðinu að hefjast.
Nú þurfum við að leita til ykkar foreldra og fá aðstoð við að útvega leikbúninga. Vinsamlegast athugið hvað til er heima og koma með það í skólann, við reynum svo að finna það sem vantar uppá hér í skólanum eða útbúa það. Einnig er gott að foreldrar tali saman t.d. ef þeir eiga gamla maskabúninga sem þeir geta lánað innan árgangsins. Margar hendur vinna létt verk
Vinsamlega látið okkur vita tímanlega ef nemendur verða ekki í skólanum árshátíðadagana.
Hlutverkaskipan og búningar:
Sögumenn: Laufey, Guðríður og Hjálmar; hirðsveina/meyjaföt.
Kossinn: Svala; rauð föt.
Drekinn: Fróði, Sigurður, Aníta og Lára; græn föt
Kóngur :Kolmar; svört föt
Drottning : Anna Salína; drottningarkjóll (maskabúningur?) kóróna
Prinsessur/Prinsar : Dagný,María og Anna María; prinsa/prinsessuföt (maskabúningur?)
Riddarar: Kristján og Dagur; riddaraföt eða svört föt undir skikkju.
Úlfar :Ásgeir, og Kristinn; dökkföt og úlfagríma/andlitsmálning?
Ljón: Guðjón og Patrekur; gul/brún föt og gríma/andlitsmálning?
Uglur: Rósa og Kristín; brún/dökk föt og gríma/andlitsmálning?
Birnir : Unnur, Agla; brún/dökk föt og gríma/andlitsmálning?
Viðfangsefni vikunnar
Íslenska:
Byrjendalæsi; Hans klaufi
Stærðfræði:
Sproti 2a bls. 52 – 61 , Tölfræði
Náttúrufræði:
Tilraun með fallhlíf.
Samfélagsfræði: Árshátíðarundirbúningur
Lífsleikni: Vinir Zippýs
Tónmennt: Árshátíðarundirbúningur
Myndmennt: Hans klaufi
Auk þess fara þau í; útivist, smíðar, dans, sund og innileikfimi.
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Stærðfræðiblað í reiknisbók í möppu (í samráði við kennara), skila mánudaginn 17. mars.
Bestu kveðjur
Helga og Kristín








