Vikuáætlun 9. - 13. febrúar
06.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun
3. bekkur
9. – 13. febrúar
Byrjendalæsi: Þessa vikuna ætlun við að bregða okkur í vísindagírinn. Við vinnum með Vísindabækur Villa. Nemendur vinna í þriggja manna hópum með eina eða fleiri tilraunir (eftir hvernig vinnst). Þau fá verklýsingu í hendurnar sem þau fylgja eftir varðandi vinnuferli og skýrslugerð.
Stærðfræði: Nokkrir eiga eftir að klára í Sprota, verður það gert ásamt því að vinna í ýmsum ókláruðum heftum.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Þeir sem eiga vísindabók Villa, hvort sem er 1 eða 2, endilega koma með hana í skólann á mánudaginn til að nota í næstu viku.
Krakkarnir fá vitnisburð afhentan á mánudag í lok skóladags.
Á mánudaginn koma fulltrúar frá rauða krossinum að fræða okkur um skyndihjálp.
Miðvikudaginn 11. febrúar verða foreldraviðtöl þar sem foreldri og nemandi koma saman til að hitta kennarann.
Á þriðjudaginn höfðum við hugsað okkur að hafa kakóstund upp í fjalli. Þann dag mega krakkarnir gjarnan koma með kex til að borða með kakóinu. Ef veðurútlit verður slæmt munum við fresta, látum þá vita með tölvupósti á mánudaginn.
Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína








