Vikuáætlun 9. - 13. desember
06.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
9.-13. des. 2013
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi Við ljúkum vinnunni með himingeiminn. Í framhaldi af því munum við vinna út frá jólalaginu Snjókorn falla og vinna ýmis verkefni út frá þeim texta.
Stærðfræði: Sproti 3a bls. 122-128 (samhverfa) og aukabækur.
Upplýsingatækni: Jólin.
Útivist: snjóbyggingar.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. |
Nú fer jólaföndur af stað hjá okkur og mikilvægt að allir séu með lím og skæri í skólanum. Við munum fara yfir þetta í skólanum og senda orðsendingu til þeirra sem eitthvað vantar hjá.
Við verðum með aðventustund á mánudaginn.
Bestu kveðjur
Magnúsína og Maja








