Vikuáætlun 8. - 12. desember

05.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar


 8. – 12. des.


 


Byrjendalæsi: Við höldum áfram vinnunni með  himingeiminn. Við ætlum að taka góða æfingu í sögugerð þar sem við vinnum út frá mynd og skoðum vel upphaf, meginmál og sögulok. 


Stærðfræði:  Sproti 3a, samhverfa, vinnum samhverfukaflann, hann er uppfullur af jólatengdu efni. Annars einbeitum við okkur áfram af uppsetningu dæma og æfum margföldun.


Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.



Heimanám: Lesa heima á hverjum degi.  Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.



 


Við ætlum að halda áfram að nota vasaljósin okkar í lestrarstundinni á morgnana.


Þessi vika einkennist nokkuð af jólaverkefnum ýmiskonar.


 


Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína