Vikuáætlun 8. - 12. apríl
05.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
8. – 12. apríl
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Unnið með bókina Komdu og skoðaðu bílinn. Ýmis verkefni unnin tengd bókinni.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók bls. 71 - 79 ásamt aukabókum.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. Stærðfræðiþraut í reikningshefti. Segðu frá heimilisbílnum, frásögn. |
Í þessari viku ætlum við að halda áfram að fræðast um bíla. Við ætlum að gera tilraunir með leikfangabíla og langar okkur því að biðja hvern nemanda að koma með einn leikfangabíl í skólann á mánudaginn og hafa hann þar á meðan á þessari vinnu stendur. Stærð bílsins skiptir ekki öllu máli en hann verður þó að komast í töskuna.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








