Vikuáætlun 7. - 11. janúar

04.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


    Vikuáætlun 2. bekkur



7. – 11. janúar 2013




Viðfangsefni vikunnar er:



Byrjendalæsi: Bókin Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur.  Ýmis verkefni unnin upp úr bókinni.



Stærðfræði: Upprifjun og próf á föstudag.



Kristinfræði: Regnboginn bls. 58 – 61 Jesús og fólkið.



Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.















Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna.



                    5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna.




 



Ef einhver á bókina Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur heima þætti okkur vænt um að fá hana lánaða á meðan við vinnum með þessa bók.



Á föstudaginn verður stærðfræðipróf og verðum við því í upprifjun þangað til.  Sprota 2a er lokið og mun bókin koma heim í töskunni seinnipart vikunnar svo að hægt sé að fletta í gegnum hana heima.



Ef einhverjir eiga eftir að ganga frá mjólkuráskrift vinsamlegast gerið það sem fyrst.



 



 



Nýárskveðjur                        
Kristín og Magnúsína