Vikuáætlun 7. - 11. apríl

04.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


7. - 11. apríl



  • Krakkarnir stóðu sig með prýði á árshátíðinni og þið megið vera stolt af þeimCool

  • Á mánudag verður aukasýning kl. 10 fyrir tvo elstu árganga leikskólanna og unglingadeildina.

  • Í útivistinni á mánudag ætlum við að hafa kakóstund og nemendur mega koma með kex í umbúðum sem komast í vasa.

  • Páskafrí hefst eftir kennslu 11. apríl.

  • Kennsla heft aftur þriðjudaginn 22. apríl samkvæmt stundatöflu.


Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Byrjendalæsi; Ýmis vinna, lestur og ritun tengd páskum.
Stærðfræði: Sproti 2a bls. Sproti 2a 78-85, Tölur upp í 100 og  æfingahefti.
Náttúrufræði: Páskavinna.
Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu land og þjóð. Bls. 1- 5.
Lífsleikni: Vinir Zippýs,  páskar
Tónmennt: Páskavinna
Myndmennt: Páskar


Auk þess fara þau í:  útivist, heimilisfræði, handavinna, dans, smíðar, sund og leikfimi.


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Gleðilega páska


Helga og Kristín