Vikuáætlun 6. - 9. janúar
06.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
6.-9. janúar
Gleðilegt nýtt ár !
Viðfangsefni vikunnar
Íslenska: Byrjendalæsi; Tt og Oo. Unnið verður með bókina Arngrímur apaskott eftir Kristínu Arngrímsdóttur.
Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 48 - 50 og aukabækur.
Lífsleikni: Zippy 2. 4
Tónmennt: Stóð ég út í tunglsljósi
Myndmennt: Áramótamynd með akríl- og vaxlitum.
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi og dans.
Heimanám :
Heimalestur
: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin
: Stafirnir
Tt og Oo
Skrifa sögu þar sem stafirnir
Tt og Oo
eru notaðir, teikna og lita mynd
við
söguna
.
Skila sögubók mánudaginn 12. janúar.
Bestu kveðjur
Helga og Árný








