Vikuáætlun 6. - 10. okt.

03.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar


 6. – 10. okt.


 


Byrjendalæsi: Í þessari viku ljúkum við vinnu okkar með landnám og fyrstu landnámsmenn Íslands með bókinni Komdu og skoðaðu landnámið, eftir Jóhönnu Karlsdóttur og Sigrúnu Helgadóttur, ásamt öðru efni.  Við munum einnig vinna með lesskilning, lestur, ritun, stafrófið og stafsetningu. 


Stærðfræði:  Nú byrjum við á nýjum kafla í Sprota 3a, sem fjallar um mælingar, stefnum niður bls. 49 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.


Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.



Heimanám: Lesa heima á hverjum degi.  Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.


 



Það hefur verið að hlaðast upp hjá okkur óskilamunir.  Við tókum okkur til og héldum uppboð á þeim í gær og komum helling til skila en strax í dag er byrjað að safnast aftur.  Við biðjum ykkur að brýna fyrir krökkunum að passa fötin sín og taka með sér heim það sem þeim tilheyrir.


 


Við höfum ákveðið að hafa Sprota æfingaheftið í möppu í töskunni alla daga.  Þá geta þeir sem vilja unnið í því heima eins og þeir vilja og hafa það svo einnig hér þegar á þarf að halda.  Það gerir ykkur foreldrum kleyft að fylgjast betur með hvað við erum að vinna með hverju sinni.  Bókin fer ofan í tösku á mánudag.


 


Kveðja,


Jón Heimir og Magnúsína