Vikuáætlun 6. - 10. febrúar 2012

06.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Vikuáætlun 1. bekkur



6. - 10. febrúar  2012




Viðfangsefni vikunnar er:



Íslenska: Stafainnlögn Dd.  Það er leikur að læra, lesbók bls. 56 - 59. Það er leikur að læra vinnubók 2 bls. 8 - 9. Skriftaræfingar.  



Stærðfræði: Spoti 1b bls. 46 - 47  og aukabækur.



Náttúrufræði: Vatn – Mælingar á vatnsmagni í mismunandi ílátum.



Samfélagsfræði: Vinir Zippýs. Leyniboxið.  Uppbyggingarstjarna.



Tákn með tali: Körfubolti, handbolti, fótbolti og blak.



Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og heimilisfræði.













Heimavinna: Dd saga í sögubók og 2 blaðsíður (merktar) í Sprota æfingahefti.  Þetta fer bæði í heim í möppu á mánudag og á að skila því föstudaginn 10. febrúar.


Í Sprotabókina má vinna meira ef þau vilja.


Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku.




 



Þessa vikuna verður sett af stað verkefnið Leyniboxið.  Þá skiptast krakkarnir á að koma með lítið box heim sem þau setja lítinn hlut í.  Þau búa til þrjár vísbendingar um hvaða hlutur er í boxinu og gott er að hafa þær skrifaðar á blaði til að muna (því það vill oft gleymast hvað við ætlum að segja þegar við stöndum fyrir framan alla).  Þegar í skólann er komið þá eiga hinir að reyna að finna út hvað er í boxinu út frá vísbendingunum.



Okkur langar til að fara í búðarleik.  Til þess vantar okkur vörur í búðina.  Við óskum því eftir heillegum umbúðum að heiman, hvað sem ykkur eða þeim dettur í hug, það fæst allt í okkar verslun.



Miðvikudaginn 8. febrúar verða foreldraviðtöl.  Þann dag mæta nemendur ásamt forráðamanni í stutt viðtal með umsjónarkennara.  Tímasetningar fyrir það eru á sérblaði.




Bestu kveðjur  



Kristín og Magnúsína