Vikuáætlun 5. - 9. mars
02.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
5. - 9. mars 2012
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Stafainnlögn Ee. Það er leikur að læra, lesbók bls. 68 - 69. Það er leikur að læra vinnubók 2 bls. 18 - 19. Skriftaræfingar.
Stærðfræði: Spoti 1b bls. 66 – 72. Aukabækur.
Náttúrufræði: Eplaskoðun og gróðursetning.
Samfélagsfræði: Leyniboxið. Komdu og skoðaðu land og þjóð bls. 4 – 5. Samvera. Vinir Zippý´s.
Tákn með tali: Á morgun, á eftir/seinna, bráðum, í dag, í gær.
Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Ee saga í sögubók og 2 blaðsíður í stærðfræðibók. Sögubókin verður í töskunni á mánudag og henni á að skila miðvikudaginn 7. mars. Stærðsfærðibókin á miðvikudag og henni á að skila föstudaginn 9. mars. Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku. |
Á mánudaginn verður sérstök lestrarstund í skólanum, nánar er fjallað um hana í bréfi sem fylgir með vikuáætlun.
Í þessari viku ætlum við að skoða epli. Í framhaldi af því ætlum við að gróðursetja eplasteina. Fyrir það vantar okkur tveggja lítra gosflöskur og ef þið eruð að borða epli heima óskum við eftir að fá steinana úr þeim í skólann.
Á föstudaginn verður næsta samvera hjá okkur. Allir sem vilja vera með atriði skrái sig hjá kennara. Öll atriði verður að æfa vel heima fyrir föstudag.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








