Vikuáætlun 4. - 8. nóvember.
31.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
4. – 8. nóvembe r
Nú er „venjuleg“ vika framundan og skólalífið fellur aftur í fastar skorður.
Læsispróf voru lögð fyrir börnin í síðustu viku, það fyrsta af þremur í 1.bekk. Þessi próf eru ætluð til að finna þá einstaklinga sem gætu verið í áhættuhóp með lestrarörðuleika. Niðurstöður verða ræddar í foreldraviðtölum þann 13. nóvember.
Viðfangsefni vikunnar
Íslenska: Byrjendalæsi; Tt og Éé Unnið verður út frá bókinni Pétur og úlfurinn eftir Sergei Prokofief og stafakönnun.
Stærðfræði:
Sproti 1b; nemendabók bls. 23 – 29 og aukabækur. Mælingar og vikudagarnir.
Náttúrufræði: Húsin í umhverfið okkar.
Samfélagsfræði/ Lífsleikni: 8. nóvember er dagur gegn einelti; þá ætlum við að skoða eineltishringinn með börnunum og fleira. Bekkjarfundur.
Tónmennt: Lestrarlagið.
Myndmennt: Teikna hús í umhverfi okkar.
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin: Stafirnir Tt og Éé
Skrifa sögu þar sem stafirnir Tt og Éé
eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna . Skila 11. nóvember.
Bestu kveðjur
Helga og Kristín








