Vikuáætlun 4. - 8. maí
30.04.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Læsi til náms – verkefni ásamt vinnubókum. Unnið út frá orðatiltækjum og málsháttum, samþætt við samfélagsfræðina.
Stærðfræði: Stika 1b – Nemendabók 7. kafli, margföldun og deiling, ásamt æfingarhefti.
Samfélagsfræði: Víkingaöld árin 800-1050, bls. 28-37 norræn samfélög, samþætt við íslensku.
Náttúrufræði: Lífríkið í sjó – Fuglar við ströndina, bls. 32-38.
Enska: Hobbies.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan – unnið gegn andfélagslegri hegðun.
Tilkynningar:
- Útileikfimin hefst í þessari viku og mæta nemendur við Íþróttahúsið á Torfnesi í góðum klæðnaði til útivistar. Ef veður er ekki hagstætt, þá fara íþróttakennarar inn með hópinn.
- Nú er lestrarsprettur í gangi í skólanum, þar sem við æfum lesturinn sérstaklega með alls konar útfærslum. Við hvetjum alla til að vera mjög duglega við heimalesturinn og svo er síðasta lestrarpróf vetrarins á næstu dögum.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








