Vikuáætlun 3. bekkur 7. - 11. maí.
04.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
7. maí – 11. maí
Í vetur höfum við unnið ýmis verkefni tengd uppbyggingarstefnunni í lífsleikni og m.a. töluðum við saman um hvernig anda krakkarnir vilja hafa í bekknum. Við settum saman smá söng um það við langið Í leikskóla er gaman Hér má sjá afrakstur vinnu okkar:
Bekkjarsáttmáli 3. HA
Í 3. bekk er gaman.
Þar læra allir saman,
sýna sátt og samlyndi
og allir fylgjast með.
Við tölum vel um aðra,
segjum satt og rétt frá,
erum glöð og stundvís
og allir hjálpast að.
Nú er stutt eftir af skólaárinu og styttist í vorprófin, en ég áætla að þau verði á tímabilinu 16. – 22. maí.
Útileikfimin hófst miðvikudaginn 2. maí og verður til skólaloka. Nemendur þurfa að vera með skjólfatnað,húfu og vettlinga.
Verkefni vikunnar:
Íslenska: Ritun, málshættir, stafsetning og Ritrún bls. 32 - 33.
Stærðfræði: Sproti 3B bls. 118 – 127 hnitakerfi.
Samfélagsfræði: Í sveitinni með Æsu og Gauta, hópverkefni.
Náttúrufræði: Hópverkefni um himingeiminn.
Tónmennt: Ísland er land þitt.
Lífsleikni: uppbyggingarstefnan.
Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.
Heimavinna
Í undirdjúpunum skv. stimpli.
Verkefni úr gömlum samræmdum prófum skv. stimli.
Lestur daglega.
Fimmorðabók a.m.k. þrisvar í viku.
Kær kveðja og gleðilegt sumar, Helga








