Vikuáætlun 3. bekkur 27. febrúar - 2. mars
23.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
27. febrúar – 2. mars
Í þessari viku verður íslenskuþema í GÍ sem tengist verkum Vilborgar Dagbjartsdóttur. Vilborg er landsþekkt ljóðskáld, barnabókarhöfundur, þýðandi og kennari. Við munum fræðast um skáldkonuna og vinna með nokkur verk hennar.
Kennaraneminn Aldís Dröfn Stefánsdóttir verður í heimsókn hjá okkur í þessari viku og ætlar að leggja nokkur verkefni fyrir bekkinn.
Orð vikunnar: langferð, fé og skynsemi.
Verkefni vikunnar:
Íslenska: Ritrún 3 bls. 22 - 23 , vinna með orð vikunnar, vinna með ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, hlustun og lesskilningsverkefni úr sögum eftir Vilborgu.
Stærðfræði: Sproti 3B bls.26 – 43 námundun.
Samfélagsfræði: Í sveitinni með Æsu og Gauta, sauðkindin.
Náttúrufræði: Komdu og skoðaðu himingeiminn bls. 12 - 13.
Tónmennt: Söngur dýranna í Týról
Lífsleikni: uppbyggingarstefnan
Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.
Heimavinna
Línan skv. stimpli. (má gera meira)
Verkefni úr gömlum samræmdum prófum. Skv. stimpli(má gera meira)
Lestur daglega.
Fimmorðabók a.m.k. þrisvar í viku.
Kær kveðja, Helga








