Vikuáætlun 3. bekkur 26. - 30. mars

23.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur


26. – 30. mars


 


Páskafrí hefst að lokinni kennslu 30. mars og kennsla hefst aftur skv. stundaskrá þriðjudaginn 10. apríl  


 


Þemadagar


 


Á fimmtudag og föstudag verða þemadagar hjá okkur í skólanum. Allt almennt skólastarf verður lagt til hliðar en þess í stað er ætlunin að blanda saman nemendum   á ólíkum aldri og mynda hópa sem fara á milli stöðva og vinna ýmisleg verkefni.  Við munum vera bæði úti og inni svo nemendur verða að vera vel búnir. Íþróttir falla niður þessa daga.


Nemendur komi með nesti eins og venjulega en á föstudaginn fá allir nemendur sem ekki eru í áskrift í mötuneytinu einnig  hádegismat í skólanum. Á þemadögunum er æskilegt að hafa   léttan bakpoka undir nesti og geyma skólatöskuna heima.    


 


Málshættir í páskaeggjum:  Við ætlum að vinna með málshætti í íslensku eftir páska og því langar mig að biðja ykkur að halda til haga málsháttunum sem koma í páskaeggjum  og  senda þá í skólann strax eftir páska.  Margt smátt gerir eitt stórt.  Safnast þegar saman kemur Laughing


 


 


Verkefni vikunnar: 


  Íslenska:  Harry Potter þema, við vinnum áfram með Harry og vini hans.


Stærðfræði:   Margföldun.


Samfélagsfræði:   Þemadagar og páskaföndur


Náttúrufræði:  Þemadagar og páskaföndur.


Tónmennt:    Þemadagar og páskaföndur.  


Lífsleikni:   Þemadagar


  Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.


 


Heimavinna:  skila á miðvikudaginn 28. mars (vegna þemadaga)  


Margföldunarblöð.


Lesskilningsverkefni:  svar þarf spurningum með heilum setningum, það er ekki nóg að skrifa bara 1 orð.    


Lestur daglega.


Fimmorðabók  a.m.k. þrisvar í viku.


 


Kær kveðja,  Helga