Vikuáætlun 3. bekkur 21. maí - 1. júní

18.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur


21. maí – 1. júní.


Nú eru aðeins 2 vikur eftir af skólaárinu og  hér kemur gróft skipulag fyrir síðustu daga skólaársins. Við munum reyna að vera meira úti svo gott væri að foreldrar aðstoði börnin sín við að velja fatnað sem hæfir veðrinu hverju sinni. 


 


Mánudagur 21. maí.   Lesskilningspróf á skólatíma, að öðru leiti venjulegur dagur.


Þriðjudaginn 22. maí. Hraðlestrarpróf á skólatíma, að öðru leiti venjulegur dagur.


Miðvikudagurinn 23. maí. Sveitaferð.


Fimmtudagur 24. maí.  Venjulegur dagur.


Föstudagur 25. maí.  Hjólaferð, allir sem geta mæta á hjólum í skólann (auðvitað verða allir með hjálm), ef einhver hefur ekki aðgang að hjóli þarf að hafa samband við mig og við finnum út úr því.  Ég ætlaði að fara með krakkana í fjöruferð en því miður er  háflóð um 11 leitið og því ekki vænlegt að fara með krakkana í fjöruna þennan dag, við ætlum hinsvegar að hjóla saman um bæinn okkar og rifja upp örnefnin og gera ýmislegt saman.  Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri og hafa léttan bakpoka  undir nesti.    


 


Mánudagur 28. maí. Annar í hvítasunnu.


Þriðjudagur 29. maí.  Skógarferð, við ætlum að hjóla inn í skóg og vera þar við leik og störf.  (nánar auglýst síðar)


Miðvikudagur 30. maí. Leikjadagur (nánari dagskrá auglýst síðar)


Fimmtudagur 31. maí.  Vorverkadagur þar sem allir nemendur og starfsmenn skólans taka höndum saman og vinnum við að fegra bæinn okkar. (nánar auglýst síðar)


Föstudagur 1. júní.   Frágangur og heimsókn á Bæjarbókasafnið.


 



 


Sveitaferð.  Á miðvikudaginn 23. maí förum við í sveitaferð að Hólum í Dýrafirði.  Við leggjum af stað frá skólanum kl 8: 20 og áætlað er  að koma heim um 13:00.  Allir þurfa að hafa með sér morgunhressingu og fernudrykk í litlum bakpoka.  Þeir sem eru í mötuneyti fá nesti þaðan en aðrir koma með sitt hádegisnesti eins og venjulega.  Við fáum að skoða hvernig daglegt líf gengur fyrir sig á sauðfjárbúi.  Á heimleiðinni ætlum við að stoppa í Önundarfirði og kíkja í fjöruna þar, svo gott er að taka með stígvél og jafnvel fötu og skóflu.


 



 


Heimavinnan er komin í sumarfrí en  auðvita þurfa allir að lesa heima daglega.


Kær kveðja Helga