Vikuáætlun 3. bekkur 19. - 20. desember

16.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir



 


Mánudaginn 19.desember er skreytingardagur og mæta nemendur eins og venjulega með skólatöskuna en skóla lýkur kl: 12:00 þann dag .    Mötuneytið er opið fyrir þá sem eru í mataráskrift og boðið verður upp á súpu og brauð. Gott væri að nemendur hefðu með sér heftara og hefti til að nota við föndrið. Strætó fer frá skólanum kl. 12.05  Dægradvöl opnar kl. 12


 


Þriðjudaginn 20. desember eru svo Litlu jólin og mæta þá nemendur spariklæddir kl: 9.00. Sú hefð hefur skapast að nemendur koma með smákökur og gos eða fernudrykk með sér í nesti.  Við ætlum að hafa notalega stund í stofunni okkar, syngja jólalög, skiptast á gjöfum, spila  og fara á jólaball. Skóla lýkur svo kl. 12:00 og þar með hefst jólafríið. Strætóferð verður  í skólann kl. 8:40 og heim kl. 12:05.


Ath.  Mötuneytið er lokað þennan dag. Dægradvöl opnar kl. 12 


 


Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.


 


Óska  nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og þakka samvinnuna á árinu sem er að líða.


Jólakveðja Helga


P.S. NÚ ÞURFA ALLIR AÐ  VERA DUGLEGIR AÐ LESA Í JÓLAFRÍINU :)