Vikuáætlun 3. bekkur 12 - 16. desember
08.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðasta vika var nokkuð laus í reipunum hjá 3. bekk þar sem bæði ég og Árný fórum í leyfi og Valgerður okkar veiktist. Þess vegna kom engin vikuáætlun og biðst ég velvirðingar á því, en nú erum við Árný komnar heim aftur og allt að falla í fastar skorður á ný.
Næstu viku er ætlunin að hafa rólega og notalega stemmingu hjá okkur í 3. bekk. Við kíkjum auðvita í skólabækurnar en ætlum líka að föndra, syngja jólalög og njóta aðventunnar.
- Sú hefð hefur skapast hér við skólann að börnin skiptast á gjöfum á Litlu jólunum. Börnin eiga að skila gjöfunum til mín eigi síðar en fimmtudaginn 15. desember. Gjöfin á að vera innpökkuð og þarf að henta báðum kynjum. Hámarksverð er 500 kr .
- Á fimmtudaginn kl. 10:30 ætlar 1.-3. bekkur ásamt 2 elstu árgöngunum í leikskólunum að syngja saman í Stjórnsýsluhúsinu. Þá væri gaman að vera með jólasveinahúfu og foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir að horfa á.
- Mánudaginn 19. desember er skreytingardagur og litlu jólin eru þann 20. Nánari upplýsingar koma á næstu vikuáætlun.
Verkefni vikunnar:
Íslenska: Ritrún 3 bls. 10 og sögugerð.
Stærðfræði: Sproti 3A, bls. 115 – 119 Deiling
Samfélagsfræði: Jólaundirbúningur
Náttúrufræði: Jólaundirbúningur
Kristinfræði: Aðventan og fæðing Jesú.
Tónmennt: Jólalögin.
Lífsleikni: uppbyggingarstefnan
Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.
Heimavinna
Rifja upp 2 og 3 sinnum töfluna .
Lestur daglega.
Fimmorðabók er komin í jólafrí .
Kær kveðja, Helga








