Vikuáætlun 3. - 7. september 2012

31.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Vikuáætlun 2. bekkur



3. – 7. september 2012



Föstudaginn 7. september er starfsdagur kennara og nemendur í fríi þann daginn.



Í þessari viku ætlum við í fjallgönguna okkar sem verður upp á Hafrafellsháls.  Við ætlum að láta veðurspá ráða ferðinni og látum vita jafnvel með dags fyrirvara hvenær við förum, svo fylgist sérstaklega vel með póstinum í næstu viku.



Heimanámið kemur nú heim í pappamöppum á föstudögum og á að skila henni í síðasta lagi á fimmtudag.




Viðfangsefni vikunnar er:



Íslenska: Bókin Langafi drullumallar   lesin og ýmis verkefni unnin henni tengd .  Ef einhver á þessa bók heima væri vel þegið að fá hana lánaða í tvær vikur.



Stærðfræði: Sproti 2a bls. 40 – 41 ásamt æfingahefti.



Kristinfræði: Regnboginn bls. 10 - 12.



Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.















Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna.



                    Orðasúpa. Stærðfræðibók vinna tvær blaðsíður.






Bestu kveðjur



Kristín og Magnúsína