Vikuáætlun 3. - 7. nóvember.

31.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


3.-7.nóvember


8. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti og því mun vinna þessa vikuna einkennast af umfjöllun um einelti.


Á miðvikudaginn 5. nóvember er áætluð rýmingaræfing vegna bruna.


 


 


Læsispróf verða lögð fyrir í þessari viku, það fyrsta af þremur í 1.bekk. Þessi próf eru ætluð til að finna þá einstaklinga sem gætu verið í áhættuhóp með lestrarörðuleika. Niðurstöður verða ræddar í foreldraviðtölum þann 12. nóvember.


 


 


Þökkum góðar undirtektir með tappasöfunina. Okkur vantar fleiri og langar því til að biðja ykkur um að halda áfram að safna töppum.


 


 


Vinsamlega skoðið í pennaveksin og athugið hvort það vanti blýanta, strokleður og yddara.


 


Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Byrjendalæsi; unnið með stafina Vv og Íí Bók vikunnar er Ýma tröllastelpa eftir Ingibjörgu S. Ingjaldsdóttur


Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 14 – 21 og aukabækur, Tölunrnar 7 – 10 og mælingar.
Lífsleikni: Eineltisumfjöllun samþætt við Byrjendalæsi
Tónmennt: Það er skemmtilegast að leika sér þegar allir eru með.


Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann.
Sögubókin (val): Stafirnir Vv og Íí.


Skrifa sögu þar sem stafirnir  Vv og Íí  eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna .

                      Skila mánudagur  10. nóvember


Bestu kveðjur


Helga og Árný