Vikuáætlun 3. - 7. mars

28.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 



  • Á bolludag (mánudagsmorgun) 8:20-9:10 verður grímuball hjá okkur, nemendur koma grímuklæddir í skólann en vopn eru ekki leyfð.  Þeir sem vilja mega hafa með sér rjómabollu í nesti.

  • Á sprengidag (þriðjudag) verður starfsdagur kennara og frí hjá nemendum.


Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Byrjendalæsi; ýmis vinna, upprifjun á einstökum bókstöfum, lestur og ritun.
Stærðfræði: Sproti 2a bls. 48-53, samlagning og frádráttur, tölurnar 1-20.
Náttúrufræði: Fylgst með vexti baunagrassins,  tilraun með fallhlíf.
Samfélagsfræði: Vinir Zippýs
Lífsleikni: Verum góð hvert við annað
Tónmennt: Tröllalag og vinalag
Myndmennt: Fellur niður vegna starfsdags.


Auk þess fara þau í; útivist, smíðar, dans,  sund og innileikfimi.


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Stærðfræðiblað í möppu (í samráði við kennara), skila mánudaginn 10. Mars.


Bestu kveðjur


Helga og Kristín