Vikuáætlun 3. - 7. desember

29.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur


3. – 7. desember


Opinn dagur er í skólanum mánudaginn 3.desember. Þá eru allir velkomnir í heimsókn og að fylgjast með kennslustund.


 


Jólaföndur; nú er tími jólaföndurs að renna upp og gott að spyrja


börnin hvort eitthvað vanti, sumir eru búnir að týna skærunum sínum


og vantar e.t.v. lím.  Einnig má koma með glimmerliti/lím og annað


föndurefni sem til er heima í skólann. 




Á föstudaginn verður  bekkjarskemmtun hjá 4. HA.


  Þá  mega nemendur koma í náttfötum í skólann með bangsann sinn


og skemmtileg spil. Einnig má koma með gos eða safa og smá nammi


sem við ætlum að gæða okkur á eftir matinn.


 


Viðfangsefni vikunnar er:


Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, unnið verður með söguna 


„Litla jólatréð“ úr bókinni Hvíti kjóllinn, sagnorð, málfræði, stafsetning og ritun.


 


Stærðfræði: Sproti bls. 107 - 113 . Margföldun og deiling.


 


Enska: Family.  Body parts and Santa Clause


 


Náttúrufræði: Dýrin undirbúa sig undir veturinn.


 


Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu sögu mannkyns.


 


Tónmennt: samsöngur og synja jólalög


 



Heimanám:


Stærðfræðiblað margföldun og deiling.


Stafsetning, skrifa upp æfingu í stílabók, passa að allt sé rétt skrifað og vanda frágang.


Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k.  5 sinnum í viku og skrifa í


5 orðabók a.m.k. 3sinnum í viku . 



 


Kveðja Helga