Vikuáætlun 31. mars - 4. apríl

28.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


31.mars- 4. Apríl.


Nú er árshátíðarvikan framundan.  1. bekkur mun sýna sitt atriði kl. 9 á fimmtudaginn og föstudaginn. Fimmtudagssýningin er ætluð nemendum í 1. og 2. Bekk og gestum þeirra. Foreldrar og aðrir ættingjar og vinir eru velkomnir á þá sýningu og er aðgangseyririnn 1000 kr. Þetta er því spennandi dagur fyrir 1. bekk, við fáum bæði að sýna og horfa á hina krakkana leika.  Að sýningu lokinni ætlum við að bregða á leik og hafa bekkjarskemmtun frá 12– 14. Þá má koma með smá sælgæti  og gos/safa og pizzaveisla.  


 


Mötuneytið er lokað vegna árshátíðar á fimmtudaginn og föstudaginn Á fimmtudaginn langar okkur að slá upp sameiginlegri pizzuveislu og þeir


sem hafa áhuga á því að vera með í því þurfa að senda börnin með 500 k r. í skólann fyrir miðvikudag.  


Á föstudaginn þarf síðan að koma með tvöfalt nesti. 


Á föstudaginn sýnum við einungis og að öðru leiti heldur stundarskráin sér, sund hjá 1. HA og leikfimi hjá 1. KO


Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Byrjendalæsi; Beint í mark  eftir Colin McNaughton  Við ætlum að vinna með Þ og Ð, framhald frá síðustu viku.
Stærðfræði: Sproti 2a bls. Klára niður  77 ,  Mælingar og vinna í æfingahefti.
Náttúrufræði: Árshátíðarundirbúningur
Samfélagsfræði: Árshátíðarundirbúningur
Lífsleikni: Vinir Zippýs, Tjáning og boðskipti.
Tónmennt: Árshátíðarundirbúningur
Myndmennt: Árshátíðarundirbúningur


Auk þess fara þau í; útivist, heimilisfræði, handavinna, sund og leikfimi.


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Bestu kveðjur


Helga og Kristín