Vikuáætlun 30. sept-4. október
27.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
30. sept. - 4. október 2013
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Áfram lærum við um landnám Íslands, hverjir fundu Ísland, hverjir numu fyrst land á Íslandi hvernig þeir námu land. Ýmis verkefni unnin. Stuðst er við bókina Fundur Íslands og Komdu og skoðaðu landnámið.
Stærðfræði: Sproti 3a bls 34-43 og aukabækur.
Upplýsingatækni: Að skrá sig inn í tölvu, námsleikir á krakkasíðum nams.is.
Útivist: setja upp dæmi og reikna á malbik
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. |
Göngum í skólann dagurinn er á miðvikudaginn og í tilefni af því fer allur skólinn í skrúðgöngu kl. 9 um morguninn. Fyrir þessa skrúðgöngu ætlum við að búa okkur til hristur svo okkur vantar litlar plastflöskur til að búa þær til.
Á mánudaginn hefst innileikfimi og þá þarf að koma með íþróttaföt og handklæði þá daga sem er leikfimi.
Við ætlum að vinna verkefni með dagblöð í þessari viku svo við ef þið eigið gömul dagblöð þiggjum við þau gjarnan.
Á þriðjudaginn verður nemendaþing hjá unglingastiginu og verða það kennarar af yngsta stigi sem verða með þeim á þessu þingi og unglingastigskennarar leysa okkur þá af í kennslu þann daginn.
Bestu kveðjur
Magnúsína og
Maja








