Vikuáætlun 30. jan. - 3. feb.

27.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Vikuáætlun 1. bekkur



30. jan. - 3. Feb.  2012




Viðfangsefni vikunnar er:



Íslenska: Stafainnlögn Nn.  Það er leikur að læra, lesbók bls. 54 - 55. Það er leikur að læra vinnubók 2 bls. 6 - 7. Skriftaræfingar.  



Stærðfræði: Æfingahefti í samlagningu klárað, frádráttarhefti  og aukabækur.



Náttúrufræði: Vatn – Hvað flýtur?



Samfélagsfræði: Vinir Zippýs. Allir koma með hlut að heiman sýna hinum og segja lítillega frá honum.



Tákn með tali: Telja, búin, hundur, köttur, hæna, hestur, kýr og svín.



Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og heimilisfræði.










 




Heimavinna: Nn saga í sögubók og frádráttardæmi í reikningshefti.



Sögubókin verður í töskunni á mánudag og henni á að skila



miðvikudaginn 1. febrúar.  



Reikningsheftið verður í töskunni á miðvikudag og því á að skila föstudaginn 3. febrúar.



Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku.




 



Á miðvikudaginn þurfa allir að koma með einn hlut að heiman sem þeir sýna hinum og segja frá.  Hluturinn verður þó að komast fyrir í skólatöskunni.  Hvað krakkarnir segja okkur um hlutinn þarf að æfa með þeim heima, jafnvel skrifa fyrir þau á miða ef þau skyldu gleyma hvað þau ætluðu að segja.  Hægt er að segja t. d. hvernig ég eignaðist hlutinn, hvort mér þykir vænt um hann og þá hvers vegna, nota ég hann oft og þá til hvers og svo framvegis.




Bestu kveðjur  



Kristín og Magnúsína