Vikuáætlun 2. - 6. mars

27.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun


3. bekkur


2. – 6. mars


 


Byrjendalæsi:   Áherslan verður nú á sögubyggingu og sögugerð.  Það verður svolítið draugalegt þema í rituninni í stíl við yfirskrift árshátíðar, sem er Draugar og galdrar.  Einnig verður unnið með lestur, lesskilning, stafsetningu, upplestur og skrift.


 


Stærðfræði:  Nú ætlum við að klára margföldunina í Sprota 3b og stefnum niður bls. 98. Stefnum á margföldun. 


 


Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.



Heimanám: Lesa heima á hverjum degi.  Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.



 


Á föstudaginn ætla töframennirnir Einar Mikael og Eyrún Anna að heimsækja skólann og sýna okkur töfrabrögð.


 












 
   

 


 


 


Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína