Vikuáætlun 2. - 6. febrúar

30.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun


3. bekkur


2. – 6. febrúar


 


Byrjendalæsi: Nú verður stafrófið tekið fyrir.  Við ætlum að læra stafrófsvísu Þórarins Eldjárns utanbókar ásamt ýmsum verkefnum því tengt.  Unnið verður með lestur og lesskilning, stafsetningu og að raða í stafrófsröð. 


Stærðfræði:  Sproti 3a verður kláraður, áfram unnið með  deilingu.


 


Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.



Heimanám: Lesa heima á hverjum degi.  Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.



 


Nú er ný önn hafin og verið er að leggja lokahönd á námsmat þessa dagana.  Vitnisburður verður sendur heim mánudaginn 9. febrúar og verða foreldraviðtöl miðvikudaginn 11. febrúar.  Miðvikudaginn 4. febrúar verður hægt að fara inn á Mentor og bóka sig í viðtal hjá kennara.


 


 












 
   

 


 


 


Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína