Vikuáætlun 29. október- 2. nóvember

25.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur


29. október – 2. nóvember




Starfsdagur og vetrarfrí 


Föstudaginn 26. október er starfsdagur hjá kennurum og því frí hjá nemendum og mánudaginn 29. október er vetrarfrí.


 


Þemadagar verða fimmtudag og föstudag. Yfirskrift dagana er Saman í liði-allir á iði. Þá  þurfa nemendur að vera klæddir til að vera bæði úti og inni. Hafa með sér nesti í bakpoka og þeir sem eru EKKI í mötuneyti þurfa að hafa mat fyrir fimmtudag en pylsupartý verður fyrir alla á föstudaginn.  


 



Frá Bæjarbókasafninu:


 


Bangsadagurinn er föstudaginn 26. október.
Bangsasögustund er kl. 15, bangsagetraun með bangsa í verðlaun, bangsamyndir að lita og Lúlli löggubangsi kemur í heimsókn.
Börn og bangsar velkomin!


 



Viðfangsefni vikunnar er:


Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, unnið verður áfram  með söguna um Glókoll, málfræði, stafsetning og ritun.


Stærðfræði: Sproti bls. 60 - 65


Enska: clothes and song, frh.


Náttúrufræði:   Vindur og plöntur.  


Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu sögu mannkyns. Kína


 



Heimanám:


Vetrarfrí í heimanámi en auðvitað þurfa allir að lesa heima.


Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k.  5 sinnum í viku og skrifa í


5 orðabók a.m.k. 3sinnum í viku . 



 


Kveðja Helga