Vikuáætlun 28. október - 1. nóvember 2013
24.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Minnsta málið lesbók bls. 18-19 og vinnubók 36-40.
Stærðfræði: Stika 3a bls. 64-95, margföldun og deiling.
Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 30-39 hamskipti, hitaþensla og leysni.
Samfélagsfræði: Miðaldafólk á ferð bls. 20-23, Silkileiðin.
Danska: Talað mál og orðaforði.
Enska: Frankenstein chapter 1 bls. 48-51, Halloween verkefni
Upplýsingatækni: Þemadagar
Lífsleikni: Þemadagar
Tilkynningar:
- Nú erum við að ganga frá jólagjöfum til barna í Úkraínu á vegum verkefnisins Jól í skókassa. Síðasti skiladagur er á miðvikudaginn.
- Á fimmtudaginn og föstudaginn eru þemadagar undir yfirskriftinni Framfarir og sköpun. Nemendur hafa valið sér viðfangsefni og verða hópaskipti þvert á árganga. Íþróttir falla því niður á fimmtudag og er viðvera í skólanum til kl. 13:00 þessa tvo daga.
- Við minnum á mikilvægi þess að lesa heima á hverjum degi. Því miður eru allt of margir sem eru ekki að sinna því og eiga því von á að fá skráða óunna heimavinnu.
Heimanám
Lesa heima í a.m.k. 15 mínútur á dag og skrifa í viðeigandi stílabók (heima eða í skóla).
Ljúka skólaverkefnum ef einhver eru.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








