Vikuáætlun 28. maí - 1. júní
25.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
28. maí – 5. júní 2012
Mánudagur 28. maí – Annar í hvítasunnu, frí.
Þriðjudagur 29. maí – Hefðbundinn skóladagur, farið verður í ratleik hluta úr degi. Lestrarbókum skilað.
Miðvikudagur 30. maí – Leikjadagur, nemendur hafa með sér nesti í bakpoka. Skóli hefst kl. 8 og lýkur kl. 13.
Fimmtudagur 31. maí – Vorverkadagur, nemendur hafa með sér nesti í bakpoka og vinnuhanska ef þau vilja. Skóli hefst kl. 8 og lýkur kl. 12. Þeir sem eiga að fara í dægradvöl fara þá beint þangað.
Föstudagur 1. júní – Við hefjum daginn í skólanum, förum svo í skóginn í Stórurð og njótum dagsins þar. Þennan dag er mötuneytið lokað svo allir þurfa að koma með tvöfalt nesti í bakpoka.
Mánudagur 4. júní – Starfsdagur kennara, ekki skóli.
Þriðjudagur 5. júní – Nemandi og foreldrar koma í stutt viðtal með kennara. Tímasetningar viðtala koma heim með nemendum á föstudag.
Sumarfrí
Sjáumst aftur í haust
Með sumarkveðju
Kristín og Magnúsína








