Vikuáætlun 28. jan. - 1. feb.
25.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
28. janúar – 1. febrúar 2013
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Áfram unnið með bókina Ísland áður fyrr: Fjölskyldan eftir Halldóru Kristinsdóttur og Kristínu Á. Þorsteinsdóttur. Ýmis verkefni unnin með textanum úr bókinni.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók bls. 14 - 21 ásamt aukabókum.
Kristinfræði: Regnboginn bls. 66 – 70, Holdsveiki. Hvar eru hinir níu.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. 2 blaðsíður í stærðfræðibók. Íslenska: Viðtal. |
Á mánudaginn verður leiksund, þar sem sundið féll niður síðasta mánudag. Þá má koma með sunddót, þetta þarf að vera dót sem þau ráða við að taka sjálf því það verða ekki pumpur á staðnum.
Á fimmtudaginn ætlum við að hafa samveru í 2. bekk. Þá geta nemendur sýnt atriði sem hafa verið æfð heima.
Á föstudaginn fá nemendur afhentan vitnisburð og foreldraviðtölin verða svo miðvikudaginn 6. febrúar.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








