Vikuáætlun 27. - 31. okt.
24.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar
27. – 31. okt.
Byrjendalæsi: Nú vinnum við út frá bókinni Ormur gutti og litli indjáninn eftir Huginn Þór Grétarsson. Unnið verður með gagnvirkan lestur, lesskilning, orðaforða, æfum notkun vennkorts til samanburðar, ritun og skrift. Einnig ætlum við að efla umburðarlyndi gagnvart hvert öðru og átta okkur á margbreytileika ólíkra menningarheima.
Stærðfræði: Sproti 3a, klukkan, stefnum niður bls. 70 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.
Á föstudaginn ætlar 2. bekkur að bjóða okkur til samveru.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Við biðjum ykkur um að athuga með skriffærin hjá krökkunum. Mikið hefur verið um það að blýantur, strokleður og yddari sé ekki til staðar og þá fer mikill tími í snúninga og vesen.
2. bekkur býður okkur til samveru á föstudaginn og munu þau núna sýna okkur atriði.
Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína








