Vikuáætlun 27. - 31. maí

24.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

      Vikuáætlun 2. bekkjar


         27. – 31. Maí


 


Við stefnum að mikilli útivinnu í þessari viku, höfum pantað gott veður og vonumst til að það berist.


Á mánudaginn ætlum við að vinna megnið af deginum í fjörunni.  Þann dag má taskan vera heima en koma með bakpoka með nesti í (borðum nesti úti) og pennaveski.  Þeir sem geta, koma með fötu og skóflu.


Á þriðjudaginn á að koma með skólatösku.


Á miðvikudaginn stefnum við að hjólaferð inn í Tunguskóg.  Eru ekki hjólin komin í gang hjá öllum??  Þann dag mæta allir á hjóli, með hjálm og hafa nesti í bakpoka. Einnig væri ráðlegt að vera með aukaföt í pokanum ef maður blotnar (það er nú einu sinni lækur á staðnum).  Síðan ætlum við að grilla pylsur frá mötuneytinu í hádeginu.  Við látum vita ef þessi áætlun breytist.


Á fimmtudaginn á að koma með skólatösku.


Á föstudaginn verður vorverkadagur.  Þá fær hver árgangur verkefni í hendurnar til að fegra umhverfi bæjarins.  Nánar um það er nær dregur.


 


Bestu kveðjur                   
Kristín og Magnúsína