Vikuáætlun 26. maí - 5. júní

24.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur       


26. maí – 5. júní 2014



Viðfangsefni vikunnar er:


Byrjendalæsi:  Ýmis verkefni.


Stærðfræði:  Stærðfræðipróf og ýmis verkefni.


Upplýsingatækni: Frjálst.


Útivist: Vorverkadagur og leikjadagur.


Auk þessa fara nemendur í leikfimi og myndmennt.










Heimavinna:  Formlegur heimalestur er nú kominn í frí en til að nemendur viðhaldi árangri sínum og haldi áfram að bæta sig er afar mikilvægt að áfram sé lesið í sumar.



 


Á miðvikudaginn verður vorverkadagur.  Þann dag verðum við úti mestallan ef ekki allan skóladaginn.  Hafa þarf með sér nesti í bakpoka og vera klæddur eftur veðri.  Þennan dag mun frístundin færast til klukkan eitt og lýkur deginum klukkan tvö eins og venjulega.


Á fimmtudaginn er uppstigningadagur og því frí í skólanum.


Á föstudaginn verður leikjadagur á yngsta stigi.  Mikilvægt að vera klæddur eftir veðri og með nesti í bakpoka.  Dagurinn hefst klukkan átta og lýkur klukkan tvö og er frístundin á sínum stað milli ellefu og tólf.


Mánudaginn 2. júní er fyrirhuguð hjá okkur hjólaferð inn í Tunguskóg.  Þann dag verður skóli frá átta til eitt.  Nánar um það síðar.


Þriðjudaginn 3. júní verður einnig skóli frá átta til eitt.  Hafa þarf með sér tvöfalt nesti.


Miðvikudaginn 4. júní verður starfsdagur og nemendur þá í fríi.


Fimmtudaginn 5. júní mæta nemendur kl. 10 að sækja námsmatið sitt.  Að því loknu er komið sumarfrí. 


                                                                           Bestu kveðjur                                 
                                                                           Magnúsína og Maja