Vikuáætlun 26. - 30. janúar

23.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


26.-30. janúar


Á miðvikudaginn 28. janúar ætlum við að halda upp á að sólin er aftur farin að skína á bæinn okkar með vinum okkar í 8. bekk. Þessir duglegu krakkar ætla að bjóða okkur í sólarkaffi.


Viðfangsefni vikunnar


Íslenska: Byrjendalæsi; Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað eftir Sigríði Arnardóttur og unnið verður með stafina D d og U u


Stærðfræði: Sproti 1. B bls. 64 -72
Náttúrufræði: Húsdýr   


Lífsleikni: Vinir Zippy 3.3. Að leysa ágreining og sættast.


Tónmennt: Sofa urtubörn


Myndmennt: Tröllamynd  


Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi og dans.


 


Heimanám :


Heimalestur : Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin : Stafirnir D og U
          Skrifa sögu þar sem stafirnir D og U eru notaðir, teikna og lita mynd við
            söguna .
                            Skila sögubók mánudaginn 2. febrúar.


Bestu kveðjur


Helga og Árný