Vikuáætlun 26. - 30. ágúst
21.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
26. - 30. ágúst 2013
Við munum halda áfram að vinna eftir aðferðum Byrjendalæsis. Byrjendalæsi samþættir íslensku, náttúrufræði, samfélagsfræði og lífsleikni. Þar með munum við bara taka fram Byrjendalæsi sem viðfangsefni vikunnar á vikuáætlun.
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Bókin Gummi fer á veiðar með afa. Ýmis verkefni unnin upp úr bókinni.
Stærðfræði: Sproti 3a bls 2-9 og aukabækur.
Upplýsingatækni: Að skrá sig inn í tölvu, námsleikir á krakkasíðum nams.is.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. |
Ef einhver á bókina Gummi fer á veiðar með afa heima þætti okkur vænt um að fá hana lánaða á meðan við vinnum með þessa bók.
Kveðjur
Magnúsína og
Maja








