Vikuáætlun 25. maí - 5. júní
22.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
25. maí – 5. Júní
Mánudagur 25. maí – annar í hvítasunnu og því frí í skólanum.
Þriðjudagur 26. maí – Venjulegur skóladagur, farið verður í heimsókn á bæjarbókasafnið þar sem sumarlesturinn verður kynntur.
Miðvikudagur 27. maí – Sveitaferð að Hólum í Dýrafirði. Skólataskan verður eftir heima. Nemendur mæta kl. 8 með nesti í bakpoka og klædd til að vera úti, þeir sem geta endilega koma með fötu og skóflu. Lagt verður af stað kl. 8:30. Ef veður verður gott er stefnan að koma við í fjörunni að Holti, þar ætlum við að leika okkur og jafnvel grilla pylsur áður en við höldum heim.
Fimmtudagur 28. maí – Vorverkadagur, mæta í skólann kl. 8 með nesti í bakpoka (ekki skólatösku). Þennan dag erum við að mestu úti. Okkar verkefni er að sá grasfræjum á völdum blettum í bænum og tína rusl í leiðinni eftir þörfum. Þennan dag verður frístundin kl. 13 – 14.
Föstudagur 29. maí – Venjulegur skóladagur.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Eftir þessa viku hættum við formlegum heimalestri en hvetjum þó foreldra til að halda áfram að fylgjast með lestri barnanna í sumar.
Mánudagur 1. júní – Venjulegur skóladagur. Þennan dag bjóðum við sérstaklega upp á að krakkar komi með útidót með sér í skólann því hluta af deginum ætlum við að verja úti að leika með þetta dót. Við kíkjum í heimsókn til félaga okkar á slökkvistöðinni.
Þriðjudagur 2. júní – Leikjadagur, mæting kl. 8 eins og venjulega og lýkur 13:40. Mæta með nesti í bakpoka.
Miðvikudagur 3. júní – Venjulegur skóladagur.
Fimmtudagur 4. júní – Starfsdagur kennara.
Föstudagur 5. júní – Afhending vitnisburða. Mæting í bekkjarstofu kl. 10:00.
Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína








