Vikuáætlun 25. febrúar - 1. mars
22.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekk
25. febrúar – 1. mars
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Unnið með bókina Ísland áður fyrr: Heimilið eftir Halldóru Kristinsdóttur og Kristínu Á. Þorsteinsdóttur. Ýmis verkefni unnin samtengd lestri og samfélagsfræði.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók bls. 44 - 49 ásamt aukabókum.
Kristinfræði: Bls. 76 - 80.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. 2 blaðsíður í stærðfræðibók. 2 blaðsíður í íslenskubók. |
Í þessari viku ætlum við að enda ævintýrið okkar, 100 ár aftur í tímann, sem við höfum verið að vinna að síðustu vikurnar. Loka hnykkurinn verður á föstudaginn en þá ætlum við að halda lítið gamaldags kaffiboð og hafa „húslestur“. Einnig væri gaman að hafa litla sýningu á gömlum munum og því biðjum við ykkur að lána okkur ef þið eigið slíka muni. Það getur t.d. verið rokkur, kambar, askur, leggir, völur, skeljar, verkfæri eða hvað sem ykkur dettur í hug.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








