Vikuáætlun 25. - 29. nóvember
22.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
25. - 29. nóv. 2013
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Við byrjum nú vinnu með himingeiminn. Sem upphaf í þeirri vinnu verðum við með bókina Sóley stjarna og bleika plánetan eftir Huginn Þór Grétarsson. Í framhaldi vinnum við svo með sólkerfið okkar. Við munum vinna með lestur, lesskilning, stafsetningu, sögugerð og fleira.
Stærðfræði: Sproti 3a bls. 92 – 98 (margföldun) og aukabækur.
Upplýsingatækni: Myndir og verkefni um himingeiminn.
Útivist: útileikir
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. |
Á miðvikudaginn ætlum við að halda bekkjarskemmtun í lok dagsins. Þeir nemendur sem vilja munu vera með atriði (dans, söngur, spila á hljóðfæri, gátur, brandarar, leikrit og fleira). Einnig munum við spila og hafa meira gaman. Þeir nemendur sem ætla að vera með atriði eiga að láta kennara sinn vita og æfa sig heima.
Bestu kveðjur
Magnúsína og Maja








