Vikuáætlun 24. - 28. september
21.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
24. - 18. September
- Skólahlaupið er þriðjudaginn 25. September. Nemendur þurfa að koma í góðum skóm þennan dag. Hlaupið hefst kl. 9:50 hjá 1. – 4. bekk og við hlaupum sem leið liggur frá horninu á Seljalandsvegi 1 að Engi og til baka.
- Í þessari viku heldur lestrarátakið áfram í skólanum og munu kennarar og nemendur reyna að lesa alla daga í a.m.k. 15 mín á skólatíma.
- Við erum að byrja á nýjum kafla í Sprota 4a og þar er viðfangsefnið tölur stærri en 1000. Af því tilefni langar mig að fá vörulista og auglýsingabæklinga t.d. úr Elko, Bykó og Rúmfatalagernum í skólann til að nota í hópavinnu í stærðfræði.
- Einnig mega krakkarnir koma með pöddur úr garðinum/nágreninu í krukkum í skólann á miðvikudaginn. Við ætlum að skoða pöddur í náttúrufræði þessa vikuna
Samræmd próf
Nú eru samræmuprófi afstaðin og allt skólastarf að falla í fastar skorður. Krakkarnir stóðu sig öll vel og gerðu sitt besta. Á mánudaginn ætlum við að gera okkur dagamun af því tilefni og hafa „bíó“ í skólanum.
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Skinna bls. 7 – 8, lestrarátak, hraðlestrarpróf og skrift.
Stærðfræði: Sproti bls. 14 - 23.
Enska: fellur niður vegna skólahlaups.
Náttúrufræði: Náttúran allan ársins hring bls. 10 – 12, pöddur.
Kristinfræði: fellur niður vegna skólahlaups.
Samfélagsfræði:Komdu og skoðaðu sögu mannkyns bls. 4 – 5.
Upplýsingatækni: fellur niður vegna skólahlaups.
Lífsleikni: Mitt og þitt hlutverk, nemendur vikunnar.
Heimanám:
Þessa vikuna er frí í heimanámi í tilefni af því að samræmdu prófin eru að búin. Það þarf bara að lesa heima og skrifa í 5- orðabókina.
Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku og skrifa í
5 orðabók a.m.k. 3sinnum í viku .
Kveðja Helga








